Mikill plús að hafa Pálma og Jóhann -grein á Vísir.is-

Ný aðferð er komin fram til að meta mikilvægi leikmanna í körfuboltanum. Snæfellingurinn Pálmi Freyr Sigurgeirsson og Njarðvíkingurinn Jóhann Árni Ólafsson eru hæstir í nýjum tölfræðiþætti KKÍ eftir fyrstu sex umferðir Iceland Express-deildar karla – þeir koma best út í svokölluðum plús og mínus tölfræðiþætti.

Þeir Pálmi og Jóhann skera sig nokkuð úr á listanum en í þriðja sæti er liðsfélagi Pálma, Hlynur Bæringsson. Njarðvíkingurinn Magnús Þór Gunnarsson er síðan í fjórða sætinu.