Snæfell tók ÍR létt á seinni sprettinum

Snæfellingar mættu í heimsókn til ÍR-inga í Kennaraháskólanum og byrjuðu af meiri krafti og voru fljótt komnir í 4-15 um miðjann fyrsta hluta og Hlynur var sterkur undir körfunni kominn með 5 fráköst eða þau flest sem í boði voru. Hittni Snæfellinga var góð á meðan heimamenn í ÍR voru ekki að setja niður skot sín. Vörn og sókn Snæfellinga var markvissari og leiddu gestirnir úr Hólminum 13-25 eftir fyrsta fjórðung þar sem Páll Fannar setti þrist undir lokin fyrir Snæfell en ÍR var aðeins að vakna…..