Glæsilegur sigur Snæfellsstúlkna á Val.

Snæfell og Valur mættust í kvöld í Fjárhúsinu í Stykkishólmi. Fyrir þennan leik voru liðin jöfn að stigum í botnsætum deildarinnar með 4 stig hvort og því til mikils að vinna. Valskonur léku án erlends leikmanns en þær létu bandaríska bakvörðinn Sakera Young fara frá félaginu fyrir leikinn. Hanna Hálfdánardóttir skoraði fyrstu körfu kvöldsins fyrir Valskonur en Kristen Green svaraði að bragði með þriggja stiga körfu fyrir Snæfellskonur. Birna Eiríksdóttir svaraði fyrir Valskonur með þrist áður en Unnur Ásgeirsdóttir jafnaði leikinn í 5-5 með góðu skoti…..  

[mynd]