Stjörnuhátíð KKÍ, okkar fólk.
Stjörnuhátíð KKÍ verður haldin laugardaginn 12 .desember í Dalhúsum Grafarvogi hjá Fjölnismönnum. Okkar fólk er aldeilis í eldlínunni og tekur þátt í hátíðinni. Gunnhildur Gunnarsdóttir verður í stjörnuleik kvenna og Kristen Green í þriggja stiga keppninni en gaf frá sér sæti í liðinu vegna ökklameiðsla. Okkar sjóðheiti Sean Burton tekur þátt í þriggja stiga keppninni og verður gaman að sjá kappann þar sem hann hefur vakið mikla athygli fyrir nýtingu sína í síðustu tveimur leikjum. Sean mun svo einnig vera í stjörnuleik karla ásamt Hlyni Elías Bæringssyni og Nonna Mæju sem einnig voru valdir. Hvetjum alla að kíkja á frábæra skemmtun. Smellið á meira hér að neðan og kíkið á liðin og tímasetningar. Leikurinn er sýndur á sport-tv.
-sbh-
Dagskráin og tímasetningar eru eftirfarandi:
13:00 Kvennaleikur hefst
13:30 3-stiga keppni kvenna í hálfleik
13:50 Kvennaleikur – Seinni hálfleikur
14:30 Forkeppni í 3-stiga keppni karla
„Celeb“ lið KKÍ gegn Úrvalsliði eldri landsliðsmanna
Troðslukeppni karla
15:30 Karlaleikur hefst
16:00 Úrslit í 3-stiga keppni karla
16:30 Karlaleikur – Senni hálfleikur
17:15 Dagskrá lokið
Liðin verða skipuð eftirtöldum leikmönnum:
Iceland Express lið kvenna:
Heather Ezell – Haukum
Signý Hermannsdóttir – KR
Marín Karlsdóttir – Keflavík
Hildur Sigurðardóttir – KR
Michelle DeVault – Grindavík
Hrund Jóhannsdóttir – Val
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir – KR
Guðrún Ámundadóttir – KR
Þórunn Bjarnadóttir – Val
Ólöf Helga Pálsdóttir – Njarðvík
Margrét Kara Sturludóttir – KR
Helga Einarsdóttir – KR
Þjálfari – Benedikt Guðmundsson
Shell lið kvenna:
Shantrell Moss – Njarðvík
Sigrún Ámundadóttir – Hamri
Kristi Smith – Keflavík
Koren Schram – Hamri
Gunnhildur Gunnarsdóttir – Snæfelli
Unnur Tara Jónsdóttir – KR
Birna Valgarðsdóttir – Keflavík
Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Haukum
Jennifer Pfiffer-Finora – KR
Hanna Hálfdánardóttir – Val
Fanney Guðmundsdóttir – Hamri
Hafrún Hálfdánardóttir – Hamri
Þjálfari – Ágúst Björgvinsson
Nokkuð var um það að leikmenn sem voru valdir í kvennaleikinn hafi ekki getað gefið kost á sér vegna meiðsla eða prófa.
Iceland Express lið karla:
Magnús Þór Gunnarsson – Njarðvík
Justin Shouse – Stjörnunni
Semaj Inge – KR
Ragnar Natanaelsson – Hamri
Jóhann Árni Ólafsson – Njarðvík
Nemanja Sovic – ÍR
Marvin Valdemarsson – Hamri
Brynjar Þór Björnsson – KR
Christopher Smith – Fjölni
Svavar Birgisson – Tindastóli
Sean Burton – Snæfelli
Þröstur Leó Jóhannsson – Keflavík
Þjálfari – Sigurður Ingimundarson
Shell lið karla:
Hörður Axel Vilhjálmsson – Keflavík
Andre Dabney – Hamri
Ægir Þór Steinarsson – Fjölni
Hlynur Bæringsson – Snæfelli
Jón Norðdal – Keflavík
Sigurður Gunnar Þorsteinsson – Keflavík
Jón Ólafur Jónsson – Snæfelli
Jovan Zdravevski – Stjörnunni
Tómas Heiðar Tómasson – Fjölni
Tommy Johnson – KR
Guðmundur Jónsson – Njarðvík
Hreggviður Magnússon – ÍR
Þjálfari – Guðjón Skúlason