Kristen Green á heimleið

Þær slæmu fréttir eru að Kristen Green hefur leikið síðasta leik sinn fyrir Snæfell á þessu tímabili. Komið hefur í ljós í meiðslum hennar á ökkla að hún er með slitin liðbönd og verður ekki leikfær fyrir en í fyrsta lagi eftir 1. febrúar 2010 eða seinna. Þetta er mikill missir fyrir Snæfellsstúlkurnar og þeirra önnur blóðtaka eftir að Berglind Gunnarsdóttir sleit krossband. Snæfell þakkar Kristen Green með söknuði fyrir hennar liðsstyrk að sinni og óskar henni velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni. Nánari leikmannamál hjá kvennaliðinu eru í skoðun og verða teknar ákvaraðanir í þeim efnum með jólasteikinni. Næsti leikur stúlknanna og jafnframt síðasti á þessu ári er útileikur á móti Grindavík miðvikudaginn 16. desember kl 19:15 en það mun verða kveðjuleikur Kristen Green sem verður á bekknum til að styðja stúlkurnar.

-sbh-