KR náði sigri í Fjárhúsinu

Snæfell og KR áttust við í Stykkishólmi í fyrsta leik á nýju ári. Fyrir leikinn var Snæfell í næst neðsta sæti með 6 stig en KR sat í efsta sæti Iceland Express deildar kvenna með 22 stig. KR unnu fyrri leik þessara liða örugglega og því var ljóst að um erfiðan leik var að ræða fyrir Snæfell. Snæfellskonur tefldu fram nýjum erlendum leikmanni en hin bandaríska Kristen Green sem hafði verið ein af þeirra bestu leikmönnum leikur ekki meira með liðinu þar sem hún er farin til síns heima. Hún sleit liðbönd fyrir jól. Í hennar stað er komin samlandi hennar Sherell Hobbs.