Hlynur í úrvalsliðið og Snæfell með besta stuðningsfólkið

Úrvalslið fyrri hluta Iceland Express deildanna voru tilkynnt í dag og eigum við Snæfell einn fulltrúa í karlaliðinu sem er fyrirliðinn Hlynur Elías Bæringsson. Justin Shouse var valinn besti leikmaðurinn og var skrefi á undan Hlyni í því kjöri. Við Snæfellsfólk megum svo mjög vel við una að fá að endingu viðurkenningu fyrir að vera stuðnigsmenn fyrri umferðar og sýnir skýrt að okkar stuðningur og kraftur liggur ávallt hjá okkar félagi og hefur gert í gegnum árin. Núna munum við koma enn sterkari á nýju ári og klára þetta tímabil með sæmd og fjölmenna öll gríðalega vel á alla leiki heima sem og okkar frábæra stuðningsfólk að heiman. Snæfellingurinn mikli Þórður Njálsson tók við viðurkenningunni, Besta stuðningsfólkið, fyrir okkar hönd. Meiri upplýsingar um liðin og aðrar viðurkenningar hér í meira…..