Haukasúlkur áfram í bikarnum eftir sigur á Snæfell.

Snæfell tók á móti Haukum í Fjárhúsinu Stykkishólmi í Subwaybikar kvenna.  Haukastúlkur byrjuðu af krafti og settu niður flottar körfur frá Kiki J. Lund, Heather Ezell og Guðrúnu Ámundar og komust í 5-13. Snæfellsstúlkur voru ekki að spila illa en voru óheppnar með að fá skotin að detta niður. Eftir smá stillingaratriði fór Snæfell að pressa sem stuðaði Hauka og fékk þer til að spila hratt og óskynsamlega. Snæfell náði að minnka muninn í 16-17 og voru að stríða Haukum mikið sem tóku leikhlé. Eitthvað náði Henning að koma til skila því síðustu tvær mínútur fyrsta hluta skoruðu Snæfell ekki stig en Haukar leiddu 16-26…..