Sigur hjá unglingaflokki og undanúrslit blasa við.

Eftir magnaðan sigur á Keflavík á útivelli mættu strákarnir í unglingaflokki Tindastóli á heimavelli.  Strákarnir taka einungis þátt í bikarkeppni unglingaflokks en mikil breyting var á liðinu sem lék í Keflavík og í kvöld.  Hlynur Hreins er fluttur á Ísafjörð, Lárus Kazmi lék með Mostra í Sandgerði og Snjólfur Björns var á stórreykjavíkursvæðinu að keppa í frjálsum og á leiðinni í bikarleik með 11. flokki.  Í staðinn var Pálmi Snær Skjaldarson mættur í slaginn og voru þær Gunnhildur Gunnars og Unnur Lára Ásgeirsdóttir klárar á bekknum.  Snæfell byrjuðu leikinn vel og leiddu 6-2 en stigaskor beggja liða var í lágmarki…..