Berglind á bataveginn eftir aðgerð.

Berglind Gunnarsdóttir fór í aðgerð á hné síðastliðinn fimmtudag þar sem krossbandaslit hennar var lagað og liðþófi að auki.  Aðgerðin heppnaðist vel og líður Berglindi vel að aðgerð lokinni.  Berglind er staðráðinn í að koma sér sem allra fyrst í boltann og halda áfram þar sem hún skildi við hópinn.  Við óskum Berglindi góðs bata og hlökkum til að sjá hana æfa og endurhæfa sig á fullu í íþróttamiðstöðinni.