Snæfell í Höllina í úrlitaleik Subwaybikarsins

Snæfellsstrákarnir voru gríðalega flottir í leiknum á móti Keflavík og slátruðu þeim í þeirra eigin Sláturhúsi 64-90 og ekki mörg lið sem halda Keflvíkingum svona niðri. Við uppskerum loksins eftir mörg vonbrigði gegn Keflavík og erum komin áfram í úrslitaleikinn í Höllinni.

Snæfell fór til Keflvíkur og leikurinn byrjaði nokkuð jafnt þó heimamenn hefðu yfir framan af. Seinni part fyrsta hluta fóru Snæfell þá að minnka bilið og jafnt var eftir hlutann 21-21. Snæfell hafði lent undir 12-6 en breyttu fljótt í 14-16….