Pálmi Freyr í hópnum fyrir Fjölnisleikinn.

Snæfell fer og mætir Fjölni fimmtudaginn 11. febrúar kl 19:15. Leikurinn er sýndur beint á Fjölnir-tv.

Þetta er ekki allt sem við höfum í fréttum í dag því hér flytjum stuðningsmönnum okkar þau gleðitíðindi að Pálmi Freyr Sigurgeirsson hefur hafið æfingar á ný og er á meðal þeirra tólf leikmanna sem halda í Grafarvoginn á morgun fimmtudag.  Pálmi Freyr var greindur með útbungun í bróski í neðanverðu baki og því verið frá í 11 vikur frá æfingum og keppni.  Þessi tíðindi eru lyginni líkust en að sama skapi gríðarlega ánægjuleg fyrir hönd Snæfellinga sem eru í harðri baráttu á öllum vígstöðum…….

Snæfell fer og mætir Fjölni fimmtudaginn 11. febrúar kl 19:15. Leikurinn er sýndur beint á Fjölnir-tv.

Þetta er ekki allt sem við höfum í fréttum í dag því hér flytjum stuðningsmönnum okkar þau gleðitíðindi að Pálmi Freyr Sigurgeirsson hefur hafið æfingar á ný og er á meðal þeirra tólf leikmanna sem halda í Grafarvoginn á morgun fimmtudag.  Pálmi Freyr var greindur með útbungun í bróski í neðanverðu baki og því verið frá í 11 vikur frá æfingum og keppni.  Þessi tíðindi eru lyginni líkust en að sama skapi gríðarlega ánægjuleg fyrir hönd Snæfellinga sem eru í harðri baráttu á öllum vígstöðum.