Snæfell vann Val og fara í úrslitakeppni í fyrsta sinn.

Kvennalið Snæfells sigraði lið Vals í Iceland express deildinni 58-83 í Vodafonehöllinni í kvöld. Með sigrinum fara Snæfellsstúlkur inn í úrslitakeppnina í fyrsta skipti á meðan það kom í hlut Valsstúlkna að fara niður um deild í ár. KR og Hamar sem eru í 1. og 2. sæti deildarinnar sitja hjá og fara beint í undanúrslit en Snæfell mætir þá 3ja sætinu sem er Keflavík í umspili um undanúrslitasæti. Snæfell varð að vinna leikinn og vona að Haukar ynnu Njarðvík til að allt gengi upp sem það gerði.