Snæfell 1-0 yfir eftir að hafa sópað Vesturbæinn

Snæfell leiðir 1-0 gegn KR í undanúrslitaeinvígi liðanna í Iceland Express deild karla eftir 84-102 sigur í DHL-Höllinni í kvöld. Hólmarar fóru á kostum í síðari hálfleik, léku magnaða vörn, röðuðu niður þristum og uppskáru sanngjarnan yfirburðasigur á KR 84-102. Menn fögnuðu þó hóflega enda um langhlaup að ræða í þessu tilfelli. Martins Berkis var atkvæðamestur í liði Snæfells í kvöld með 21 stig en Finnur Atli Magnússon gerði 20 stig í liði KR…… Karfan.is greinir frá smellið hér til að sjá meira þar inni.

[mynd]

[mynd]