Drengjaflokkur í undanúrslit eftir sigur á Njarðvík

Skallagrímur/Snæfell mættu Njarðvík í dag miðvikudag 14. apríl kl 19:00 í Íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Þeir höfðu sigur í leiknum og komust í undanúrslit og sá leikur er á laugardaginn 17. apríl kl 17:15 í Smáranum Kópavogi þar sem undanúrslita og úrslitaleikir yngri flokka fara fram næstu helgi. Úrslitaleikurinn er svo sunnudaginn kl 14:00 ef þeir fara þangað.

Stúlknaflokkur eru komnar í undanúrslit gegn KR laugardaginn kl 13:45. Úrslitaleikurinn er sunnudaginn kl 12:00 ef þær fara þangað. Mætum og styðjum okkar lið.