Stúlknaflokkur hlaut annað sætið á Íslandsmótinu.

Stúlknaflokkur Snæfells rétt missti af íslandsmeistaratitlinum eftir æsispennandi leik gegn Haukum í Smáranum Kópavogi. Leikurinn endaði 70-68 og átti Björg Guðrún síðasta skotið. Snæfellsstúlkur taka þar með silfrið í sínum flokki og er það gríðalega góður árangur hjá þeim þó alltaf sé sárt að verða undir í svona jöfnum leik sem þessum. Snæfell leiddi í hálfleik 38-36 en Haukastúlkur héldu sínu í lok leiks og er íslandmeistarar stúlknaflokks.

Góður árangur hjá stúlknaflokki í  vetur undir stjórn Inga Þórs en þær hafa verið að spila undirmannaðar í vetur og mikið mætt á þeim í meistaraflokk einnig.