Drengjaflokkur með silfur

Drengjaflokkur Snæfells/Skallagríms beið lægri hlut gegn Fjölni 86-61 og fengu þar með silfur eftir úrslitaeinvígi íslandsmótsins. Fjölnir gekk strax á lagið og unnu fyrsta hluta 18-9. S/S eltu allann leikinn og ógnuðu forystu Fjölnis aldrei en undir lokin gerðu Fjölnis alveg út um leikinn með 33-20 sigri í lokahlutanum og Fjölnir íslandsmeistari Drengjaflokks.

Góður árangur hjá Snæfell/Skallagrími í vetur undir stjórn Inga Þórs sem bikarmeistarar og silfurhafar íslandsmótsins.