Berkis ekki með Snæfelli næstu leiktíð.
Martins Berkis hefur samið við Komarno í Slóvakíu fyrir næstu leiktíð og því ljóst að kappinn leikur ekki með Íslands- og bikarmeisturum Snæfells á næstu leiktíð.
Komarno enduðu í sjötta sæti og féllu út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Slóvakíu í vor. Liðið ætlar sér stærri hluti á næsta ári og fylgdist eigandi liðsins sem er bandarískur með Martins í leik með Snæfell og heillaðist af kappanum.
Við Hólmarar kveðjum Martins með söknuði og óskum honum góðs gengis á nýjum slóðum og erum þess fullvissir að leiðir hans og Snæfells eiga eftir að liggja saman á ný í framtíðinni.
Tags: Fréttir