Úrvalsbúðir og Afreksbúðir KKÍ helgina 14 – 15 ágúst.

Úrvalsbúðir KKÍ · Seinni helgi 14.-15. ágúst
Þá er komið að seinni helgi Úrvalsbúða KKÍ en búðirnar fara fram laugardaginn 14. ágúst. og sunnudaginn 15. ágúst.
Úrvalshópar eru undanfari yngri landsliða Íslands þar sem unglingalandsliðsþjálfarar ásamt gestaþjálfurum stjórna æfingum og fara yfir öll helstu tækniatriði íþróttarinnar.
Úrvalsbúðir eru fyrir krakka á aldrinum 11-13 ára. Í ár eru það drengir og stúlkur sem eru fædd 1999, 1998 og 1997.