Ryan Anthony Amoroso bætist við mfl karla.

Karlaliði Snæfells hefur borist liðsstyrkur en það er Ryan Anthony Amoroso fæddur 1985 Minneapolis Bandaríkjunum og er með ítalskt vegabréf er um 206cm á hæð og mun spila undir körfunni fyrir Snæfell. Ryan spilaði á Ítölsku 2. deildinni í fyrra með Andrea Costa Aget Imola þar sem hann lék stöðu power forward. Ryan spilaði með San Diego háskólanum og útskrifaðist þaðan.