Kynningar á leikmönnum meistaraflokkanna

Á næstu dögum eða strax eftir helgi munum við hefja kynningar á leikmönnum og þjálfurum meistaraflokka karla og kvenna. Hver og einn meðlimur í æfingarhóp liðanna verður kynntur sérstaklega og skiptumst við á að setja inn úr karla og kvennaliðinu.

Þetta verður á léttu nótunum þar sem allir fengu sömu spurningarnar og fylgja myndir með. Það sem leikmenn segja frá eru t.d. þeirra uppáhalds lið í NBA og fótbolta og hvernig þeim líst á veturinn.