Æfingaleikur Snæfellsstúlkna

Stelpurnar mættu í KR-heimilið þar sem þær léku gegn mjög sprækum drengjaflokksstrákum í KR.  Strákarnir höfðu töluverða yfirburði og sigruðu örugglega 81-40…..

Stelpurnar mættu í KR-heimilið í gær laugard 11.sept þar sem þær léku gegn mjög sprækum drengjaflokksstrákum í KR.  Strákarnir höfðu töluverða yfirburði og sigruðu örugglega 81-40, staðan í hálfleik var 38-16.  Leikurinn var aldrei spennandi en bæði lið voru að prófa sína hluti.
 
Stigaskor Snæfellsstúlkna:
 
Stigahæst var Jamie Braun með 12 stig og 4 fráköst,
Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 11 stig og 5 fráköst,
Hildur Björg Kjartansdóttir 6 stig og 3 fráköst,
Sara Mjöll Magnúsdóttir 4 stig og 3 fráköst,
Björg Guðrún Einarsdóttir og Berglind Gunnarsdóttir 3 stig hvor.
Inga Muciniece 2 stig og 5 fráköst. 
Rósa Indriðadóttir og Aníta Sæþórsdóttir léku en náðu ekki að skora.
 
Á morgun leika stelpurnar gegn Hamarsstúlkum í Hveragerði og eru staðráðnar að gera betur á morgun.
 
 
sbh