Snæfell Lengjubikarmeistari karla.

Snæfell sigraði KR í úrslitaleik Lengjubikarsins 97-93. Staðan í hálflelik var 47-51 fyrir KR. Leikurinn var nokkuð jafn heilt yfir þó KR hefði nokkra stiga forskot í seinni hálflelik. Snæfellingar héldu sér alltaf inni í leiknum þrátt fyrir að framan af virtist Pálmi sá eini með lífsmarki í liðinu og mikið hafi vantað upp á framlag fleirri leikmanna. En haustbragur var á báðum liðum sem verða ábyggilega í harðri baráttu um toppsætin í vetur. Snæfellingar áttu að lokum betri endasprett og fengu þar með enn einn bikarinn í safnið í vetur.