Sigur í fyrsta leik unglingaflokks karla.

Strákarnir í unglingaflokki fengu Hamar/Þór í heimsókn en Þórsaranna vantaði í leikinn.  Þrír strákar úr Borgarnesi komu í leikinn en liðið hefur ekkert æft saman.
Birgir Pétursson og Guðni Sumarliðason opnuðu stigareiking vetrarins í unglingaflokki og leiddu Snæfell/Skallagrímur 23-12 eftir fyrsta leikhluta þar sem Kristján Pétur smellti niður þremur af fjórum þristum sínum en Egill Egillsson laumaði einum…..