14-0 spretturinn var lokatónninn hjá Snæfelli.

Án efa leikur annarar umferðar Iceland express deildar karla.  Gull og silfurlið íslandsmótsins mættust en bæði lið unnu leiki sína í fyrstu umferð þar sem Snæfell lagði Fjölni 102-97 og Keflavík sigraði ÍR 88-77.

Ryan og Sean opnuðu leikinn með sínum þristinum hvor. Mikil þriggja stig skot fóru frá Snæfelli en Keflavík var að spila sterka svæðisvörn og uppskar að jafna 8-8 en leikurinn var jafn í fyrsta leikhluta og rosalegur hraði í leiknum en Snæfell hafði skoraði fyrstu 17 stig sín úr þristum + 2 vítum…..