Víkingur Ólafsvík áfram í bikarnum.

Ekki það að þetta sé orðin fréttasíða fyrir Viking Ólafsvík í körfunni en þau skemmtilegu tíðindi eru að Víkingur skaut sér leið í 32-liða úrslit Poweradebikarsins eftir naumann sigur 71-73 á Álftanesi. Þetta er nú kannksi ekki frá sögu færandi nema að þeir fá þann einstaka heiður að spreyta sig á verandi bikarmeisturum Snæfells í næsta leik. Leikurinn mun fara fram í Ólafsvík og munu Hólmarar að sjálfsögðu flykkjast þangað og gera gott mót, þetta á bara eftir að efla körfuboltann á nesinu og tökum við því fagnandi.

Meira um þetta síðar en til hamingju Víkingur.