Snæfell valtaði yfir Keflavík.

Það var gamla kempan Falur Jóhann Harðarson sem mætti með unglingaflokk kvenna úr Keflavík í heimsókn miðvikudagskvöldið 27. október í íþróttahús Stykkishólms. Berglind Gunnarsdóttir opnaði stigareikninginn en Keflavík jöfnuðu 2-2, eftir það tóku Snæfellsstúlkur völdin og leiddu 17-11 eftir að Ellen Alfa hafði komið gríðarlega fersk af bekknum og skorað sex stig á stuttum tíma.  Í upphafi annars leikhluta smellti Ellen tveimur þristum og Snæfell komnar 23-11 yfir…..