Snæfell í vandræðum með grimma Tindastólsmenn.

Snæfell lagði leið sína á Krókinn þar sem eina stigalausa lið deildarinnar Tindastóll tók á móti okkar mönnum. Fyrir leikinn var toppsætið í boði fyrir Snæfell en fyrstu stigin í vetur fyrir Tindastól. Leikurinn byrjaði af krafti heimamannasem komust strax í 10-2 og voru sprækir með skyttuna Friðrik Hreinsson í fararbroddi. Snæfellingar voru ekkert á stressinu yfir þessu og sigu hægt og bítandi nær en staðan var 26-23 eftir fyrsta hluta fyrir Tindastól…..