Snæfell knúði fram sigur í lokin.

ÍR tók á móti efsta liði deildarinnar Snæfelli en þar eru þeir með 10 stig eftir 5 sigra og 1 tap en ÍR í 11. sæti með 1 sigur og 5 tapleiki.


ÍR byrjuðu ferskir og voru greinilega hungraðir í fleiri stig og sigra í deildinni. Sóknarleikur þeirra gekk ágætlega upp en þeir þurftu meira að hafa fyrir varnarleiknum til að halda Snæfelli frá sér. Snæfellingar gerðu sig seka um einstaka slakar sóknir en þeir urðu að halda í við ÍR og máttu við fáum mistökum þar sem ÍR var að hitta vel……