Heimaleikur í 16 liða Poweradebikarum.
Karlalið Snæfells fær heimaleik í 16 liða úrslitum Poweradebikarsins og það voru svo Njarðvíkingar sem drógust á móti þeim. 16 liða úrslitin verða spiluð 3. – 6. desember nk og kemur nánar í ljós síðar hvaða dag leikurinn lendir á en 5. desember kl 19:15 mun vera líklegur en ekki staðfestur.
Kvennaliðið okkar situr hjá í 16 liða úrslitum kvenna og fer beint í 8 liða úrslitin.
Tags: Fréttir