Ryan Amoroso meiddur.

Ryan Amoroso meiddist á kálfa í 112-89 tapleik gegn Keflavík. Ryan hafði átt við þessi meiðlsi að stríða frá æfingu með Snæfelli en var allur að ná sér og var vel vafinn fyrir leikinn. Ekki fór það betur en svo að eftir þriggja mínútna leik þurfti hann að fara af velli og tók ekki meira þátt í leiknum. Ryan fer í læknisskoðun á morgun þriðjudag og hugsanlegt að hann verði frá í einhverjar vikur til þess að ná sér að fullu.