1 stig sigur á Njarðvík

Í Stykkishólm mættu Njarðvíkingar en þeir hafa tvívegis fagnað sigri í viðureignum liðanna í vetur. Annars vegar í Poweradebikarnum í Hólminum og hins vegar í fyrri leik liðanna í Iceland express deildinni sem fór 89-87 fyrir Njarðvík. Sviptingar innan liðanna fyrir þennan leik voru að Ryan Amoroso hvíldi vegna meiðsla og Gunnlaugur Smárason var kominn í aðstoðarþjálfarastöðuna hjá Snæfelli. Hjá Njarðvíkingum var  Guðmundur Jónsson frá vegna meiðsla en hann fann sig vel í Hólminum í síðustu heimsókn. Þjálfararnir Friðrik Ragnarsson og Einar Árni Jóhannsson að leita eftir sínum fyrsta sigri með Njarðvík og snúa við gengi þessa sigursæla liðs….