Gunnlaugur aðstoðarþjálfari karlaliðs Snæfells.

Gunnlaugur Smárason eða Gulli, eins og við þekkjum hann líka, hefur verið hækkaður í tign eftir að hafa átt við þrálát meiðsli að stríða sem hafa hamlað honum fullri þátttöku í æfingum og leikjum. Gulli verður aðstoðarþjálfari Inga Þórs hjá karlaliðinu og kemur til með að hvíla spilamennskuna allavega í bili. Gunnlaugur kemur sterkur inn í þetta verkefni þar sem hann þekkir hvern krók og kima í liðinu og kemur án efa með einhverjar góðar fléttur og stendur sig með stakri prýði eins og honum einum er lagið. Við óskum Gulla góðs gengis í nýrri stöðu hjá Snæfelli.

-sbh-