KKÍ 50 ára

Körfuknattleikssamband Íslands fagnar í dag 50 ára afmæli sínu. Af því tilefni mun sambandið standa að veglegum körfuboltadegi í Vetrargarði Smáralindar frá kl. 14-17. Jóel Sæmundsson körfuboltamaður og leikari mun stýra dagskránni og verður margt skemmtilegt á boðstólunum. Til gamans má geta að körfuknattleikur er önnur mest útbreiddasta íþrótt landsins samkvæmt tölum ÍSÍ.