34 stig og 20 fráköst frá Monique dugðu vel í Snæfellssigri

Snæfellsstúlkur fóru suður til Grindavíkur og öttu kappi við heimastúlkur þar. Snæfell í efsta sæti b-riðils með Njarðvík á hælunum sem sigruðu í sínum leik í gær, en Grindavík að berjast fyrir veru sinni í Iceland express deildinni.