Snæfell bakaði ÍR.

Leikurinn byrjaði hratt eins og þessum liðum er tamt. Staðan var þó ekki nema 8-5, þrátt fyrir hraðann, eftir 5 mínútur þar sem liðin voru að spila góðar varnir. Jafnt var á með liðunum og staðan 10-9 þegar Pálmi Freyr átti næstu 5 stig og var frískur. Kelly Biedler var ekki að finna sig í upphafi en kom með stolinn bolta og tvær troðslur, ekki í einu samt, til að krydda sinn leik. Staðan 17-15 fyrir Snæfell eftir fyrsta hluta.

Stigin á töflunni ruku upp þegar þriggja stiga sýning að hætti hússins fór í gang með einum frá Atla Rafni og tveimur frá Nonna Mæju….