Baráttuglaðari Grindavíkurstúlkur sigruðu Snæfell.

Laura Audere byrjaði af krafti með fyrstu 5 stig leiksins og 3 fráköst. Snæfell komst svo í 7-0 áður en Janese Banks setti þrist fyrir Grindavík. Snæfell voru komnar í 12-3 þegar Jóhann Ólafsson tók leikhlé til að fara yfir málin sem var góð vítamínsprauta fyrir liðið sem kom mun ferskara til leiks og náði að saxa forskotið niður í 14-12. Snæfell áttu í allnokkrum vandræðum með Grindavík undir lok fyrsta hluta og Grindavík jöfnuðu 18-18 eftir að Helga Hjördís fékk dæmda á sig óíþróttamannslega villu og komust svo strax yfir 18-20 sem var staðan eftir fyrsta hluta…..