Stjörnuvörnin meisturunum um megn

Sterk Stjörnuvörn var lykillinn að sigri Garðbæinga í kvöld þegar Íslandsmeistarar Snæfells mættu í Ásgarðinn. Lokatölur voru 94-80 Stjörnunni í vil en heimamenn náðu fljótt undirtökunum í leiknum og héldu þeim allt þar til lokaflautið gall. Renato Lindmets var fremstur meðal jafningja en hann átti teiginn í kvöld með 29 stig og 10 fráköst. Hjá Snæfell var Sean Burton stigahæstur með 20 stig og 14 stoðsendingar.

Stjarnan varð fyrri til að kveða sér hljóðs í Ásgarði og eftir þrist frá Justin Shouse leiddu heimamenn 7-2 og síðar 17-7 með sterkum varnarleik. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 21-9 Stjörnunni í vil og meistarar…..