Unglingaflokkur kvenna deildarmeistarar 2011

Eftir sigur á Haukum 65-47 þá urðu stúlkurnar í Unglingaflokki deildarmeistarar og fóru taplausar í gegnum deildarkeppnina í vetur. Þær eru einnig bikarmeistarar og sópa að sér gullinu. Það verður því gaman að fylgjast með úrslitaviðureignum þeirra fyrir íslandmeistaratitlinum.

Til hamingju stúlkur 🙂