Snæfell tekur annað sætið og mætir KR í fyrstu umferð.

Snæfellsstúlkur biðu lægri hlut, 75-68, á móti Njarðvík í Ljónagryfjunni í jöfnum og spennandi leik. Þetta var síðasti leikur í deildarkeppninni og hefst svo úrslitakeppni kvenna líklegast laugardaginn 12. mars.

Leikurinn var jafn allann tímann en Snæfelll var yfir 14-15 eftir fyrsta hluta. Í öðrum hluta höfðu liðin bæði skorað 22 stig hvort og staðan 36-37 fyrir Snæfell og hvorugt liðið að hrista hitt af sér…..