Tap gegn KR. Mætum Haukum í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Snæfell tapaði gegn KR í síðasta leik Iceland express deildarinnar 116-93. Allir fengu að spreyta sig en þessi leikur hafði þannig enga þýðingu fyrir Snæfell en KR endaði í 2. sæti eftir þennan leik.

Það voru svo Haukar sem náðu 8. sætinu og mæta í Hólminn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Úrslitakeppnin byrjar fimmtudaginn 17. mars en ekki eru komnir tímar á fyrstu leikinagegn Haukum. Fylgist með það kemur fljótt hérna inn. Hér að neðan eru tenglar á tölfræði leiksins og umfjöllun frá Karfan.is.

Tölfræði leiksins á kki.is

Karfan.is