Úrslitaleikir að byrja í körfunni.

Komnir eru tímar á næstu leiki hjá meistaraflokkum karla og kvenna Snæfells í körfu. Hjá stúlkunum sem hefja leik  gegn KR í vesturbænum er breyttur leiktími á laugardaginn 12.mars og hefst leikurinn kl 16:00 en ekki 17:15 eins og áður sagði. Strákarnir hefja leik gegn Haukum í 8-liða úrslitum á föstudaginn 18. mars í Stykkishólmi kl 19:15.