Snæfellsstúlkur ljúka leik í meistaraflokki en ekki baráttulaust.

Það voru KRingar sem fóru áfram 2-0 eftir 76-84 sigur í kvöld. Snæfellsstúlkur létu leikinn ekki eftir baráttulaust og voru flottir taktar í okkar stúlkum á köflum sem komust yfir og voru að láta KR hafa fyrir hlutunum. Allflestir leikmenn Snæfells eru þó ekki komnar í frí því deildar og bikarmeistarar unglingaflokks eiga eftir að fara í úrslit íslandsmótsins 8-10 Apríl n.k.