Unglingaflokkur karla í undanúrslit eftir góðann sigur.

Strákarnir í unglingaflokki voru með bakið upp við vegg og þurftu sigur gegn Njarðvík í lokaleik þeirra í deildarkeppninni á íslandsmótinu.  Strákarnir sigruðu í öllum sínum heimaleikjum eða sjö talsins og voru eina liðið í unglingaflokki sem náðu því takmarki.  Lokatölur 85-60 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 42-41.  Kristján Pétur Andrésson var stigahæstur með 24 stig og 8 fráköst.

Það voru gestirnir úr Njarðvík sem hófu leikinn betur og leiddu 5-11 og 11-16.  Snæfells/Skallagrímsmenn náðu að stöðva hraðupphlaup Njarðvíkinga og komust yfir 17-16 en staðan eftir fyrsta leikhluta 19-20 Njarðvík í vil…..