Úrslitakeppni yngri flokka. – unglingaflokkar karla og kvenna –

Næstu helgi er komið að fyrri úrslitahelgi yngriflokka en leikið er í Laugardalshöll og er umsjón í höndum Fjölnis. Snæfell á tvo fulltrúa í úrslitakeppninni en það eru Unglingaflokkur kvenna og sameiginlegur Unglingaflokkkur karla með Skallagrím. Fylgist með á „live stat“ og líklega á Fjölnir-tv þar sem þeir sýna líkast til frá öllum leikjum, jú svo er einmitt lag að skella sér á leikina og hvetja sitt lið.