Sár endir á góðu tímabili hjá unglingaflokk karla

Strákarnir í unglingaflokki sem hafa staðið sig gríðarlega vel í vetur en liðið endaði í öðru sæti eftir deildarkeppnina sem var framar öllum vonum.  Liðið mætti sterkum bikarmeisturum Hauka en það var hart barist þar sem Guðni Sumarliðason var algjörlega á eldi og endaði stigahæstur með 28 stig.

Haukar byrjuðu sterkt og ætlaði Ingi Þór að stöðva þá byrjun Hauka en uppskar tæknivíti fyrir að lemja í ritaraborðið og reyna að vekja starfsmenn leiksins sem höfðu klikkað tvívegis að veita Snæfell/Skallagrím leikhlé……