Snæfellsstúlkur í úrslit eftir sigur á Njarðvík

Stelpurnar í Snæfell tryggðu sér örugglega í úrslit eftir góðan sigur á Njarðvík 75-53.  Staðan í hálfleik var 39-20.  Berglind Gunnarsdóttir var stigahæst með 19 stig og 6 fráköst í jöfnu liði Snæfells.

Varnarleikur stelpnanna í byrjun var mjög kröftugur og voru þær komnar strax í 9-0 áður en Njarðvíkurstúlkur náðu að svara.  Staðan 11-7 þegar annar 9-0 kafli kom og sleit liðin í sundur, staðan 24-12 eftir fyrsta leikhluta…….