Þrír í æfingarhóp A-landsliðsins frá Snæfelli

Þrír leikmenn okkar hafa verið kallaðir í 22. manna æfingarhóp A-landsliðsins. Það eru þeir Jón Ólafur Jónsson (Nonni Mæju), fyrirliðinn okkar Pálmi Freyr Sigurgeirsson og Emil Þór Jóhannsson. Þeir munu allir koma til með að æfa með A-landsliðinu i 22. manna hópnum en þar hitta þeir fyrir Hlyn Bærings sem einnig er í hópnum sem verður við æfingar 10. – 12. júní. Norðurlandamótið fer fram í Sundsvall og fer hópurinn út 20. júlí.