Hafþór Gunnars skellir sér aftur í Snæfell

Hafþór Ingi Gunnarsson hefur nú sagt skilið við Skallagrímsmenn í bili og samið við Snæfell.  Hafþór samdi til eins árs en hér hefur hann leikið áður, leiktímabilið 2003-2004 og því öllum hnútum kunnugur í bænum. Hafþór lék með Borgarnesi á síðasta ári en vildi breyta til og samdi við fyrrum félaga sína í Snæfell.