Snæfell með bæði lið á Ljósanæturmótið

Mfl. karla og kvenna mun taka þátt í Ljósanæturmóti hjá UmfN og Keflavík í Reykjanesbæ. Mótið fer fram dagana 30. ágúst – 2. september og er leikið bæði í Ljónagryfjunni Njarðvík og Toyotahöllinni Keflavík. Ásamt Snæfelli og gestgjöfunum í Njarðvík og Keflavík munu Grindavík, Fjölnir og ÍR einnig taka þátt í karlaflokki. Í kvennaflokki verða einungis fjögur lið, Snæfell, Haukar, KR og Njarðvík en Shannon McKever verður lent daginn fyrir fyrsta leik stúlknanna og dettur beint inní þetta verkefni með þeim.